Þú ert hér > Forsíða > Fréttir

Fréttir

25.2.2010 17:09:05
Nóg að gera hjá Sigurvon
Um 100 fastir bílar í Sandgerði.

Nóg hefur verið að gera hjá björgunarsveitinni í dag. Hafa félagar í Sigurvon aðstoðað íbúa Sandgerði frá því klukkan 7 í morgun. Og lentu því miður margir í því að þurfa að bíða í bílum sínum í langan tíma þar sem að björgunarsveitin hafði vart undan að draga upp bíla.

Sigurvon aðstoðaði hjúkrunarfræðiniga sem sjá um heimahjúkrun í Sandgerði Garði og Innri-Njarðvík ásamt því að senda bíl til aðstoða í Reykjanesbæ þegar rólegt var orðið í Sandgerði.

En klukkan 17:00 voru meðlimir Sigurvonar búnir að aðstoða um 100 bíla í bæjarfélaginu og enn eru bílar fastir víða um bæinn og mun Sigurvon sinnu sínu starfa framm á kvöld.

Minnum á að ef íbúar þurfa aðstoð er hægt að hringja í síma 423-7777.

 

Mynd: Hilmar Bragi Bárðarson / vf.is



Prentvæn útgáfa

Til baka